Guerlain er þekkt fyrir að gefa út fallega jólalínu ár eftir ár. Þetta árið má sjá mikið gull og glamour, hefðbundnar og óhefðbundnar snyrtivörur sem við getum hreinlega ekki tekið augun af! Pakkningarnar eru að vanda glæsilegar og myndu sóma sig vel á snyrtiborðinu. Í jólalínunni má finna vörur sem hægt er að nota á margan hátt sem er skemmtilegt og öðruvísi.
GOLD PALETTE
Þessi glæislega palletta inniheldur 6 augnskugga og 2 kinnaliti en er þó mjög fjölnota þar sem hægt er að nota kinnaliti á augu og augnskuggana sem highlight á andlit. Fallegt er að nota litina þurra en einnig er hægt að bleyta aðeins upp í þeim og ná fram fallegu metalic útliti. Þessi er algjört must fyrir snyrtivöru aðdáendur!
TERRACOTTA GOLD LIGHT
Vinsæla Terracotta púðrið frá Guerlain er nú komið í jólabúning! Púðrið skilur eftir sig fallegan gylltann ljóma og gefur húðinni áferð sem er engri lík.
METEORITES GOLD LIGHTS
Ljómaperlurnar einkenna Guerlain og eru hluti af jólalínu Guerlain í takmörkuðu upplagi. Perlurnar í jólalínunni eru gylltar og perluhvítar en þær gefa húðinni einstakan ljóma og gefa húðinni líf!
ROUGE G
Jólalínan inniheldur 2 rauða varaliti í fallegum og jólalegum tónum. Litsterkir og kremaðir varalitir sem gefa vörunum góða næringu! Litirnir heita Glamorous Cherry og Flaming Red.
GOLD LIGHT TOPCOAT
Það má yfirleitt finna eina óhefðbundna vöru í jólalínum Guerlain. Í fyrra var það ilmsprey með ljóma sem var guðdómlega fallegt og í ár er það gull maskari sem hægt er að nota í augabrúnir, augnhár og hár fyrir auka “Glam“